You are hereAlgengar spurningar
Algengar spurningar
Hvernig og hvenær get ég byrjað að æfa ?
Tímarnir hjá okkur eru opnir og er því hægt að byrja hvenær sem er. Það er nóg að mæta í tíma samkvæmt stundatöflu, skrá sig á staðnum og byrja strax að æfa.
Get ég komið inn í byrjendatímana á miðri önn ?
Já, tímarnir eru opnir og því alltaf fólk að bætast inn í hópinn og tínast úr honum upp í framhaldshóp. Alltaf er verið að fara yfir grunnatriðin í byrjendatímunum svo ekki skiptir máli hvenær ársins er byrjað að æfa.
Verð ég ekki langt á eftir ef ég byrja á miðri önn ?
Nei, líta má á byrjendatímana sem stökkpall upp í framhaldshópinn. Alltaf eru nýir aðilar að bætast inn í og því er farið yfir grunnatriðin jafnt og þétt yfir allt árið. Þegar grunnatriðunum hefur verið náð er farið upp í framhaldshópinn.
Eru æfingarnar í hópatímum eða er einstaklingskennsla ?
Tímarnir eru kenndir í hópatímum. Unnið er í hópum við upphitun og þrekæfingar en þegar kemur að tækniæfingum gengur þjálfarinn á milli og tekur hvern og einn fyrir. Einnig er mikið unnið í pörum og þá sérstaklega í byrjenda- og framhaldstímum.
Hvað þarf ég að hafa með mér í fyrsta tímann?
Nóg er að mæta með venjuleg íþróttaföt og skó. Hanskar og annað er til á staðnum.
* * *
Hægt er að leggja fram spurningar í hnefaleikar@hnefaleikar.com


