Diplomakeppnin 9.desember 2006

Diplomabox Laugardaginn 9. desember 2006 fór fram hjá Hnefaleikafélagi Reykjavíkur fyrsta stóra mótið í Diploma hnefaleikum á Íslandi. Skráðir voru keppendur frá 4 hnefaleikafélögum og mættu alls 43 krakkar til keppni auk fjölda áhorfenda. Þrátt fyrir ýmsa byrjunarörðuleika ( vegna tafa við að para keppendur saman hófst keppni ekki fyrr en kl. 15.15 í stað 14.oo ) viljum við meina að keppnin hafi tekist í alla staði vel, ekki tókst þó að útvega öllum krökkunum mótherja og endaði með að bardagar urðu alls 18 sem má teljast nokkuð gott. Stefnum við ásamt hinum félögunum á að haldnar verði allavega 2- 4 diplomakeppnir fram til vors og mun reynslan frá þessu móti nýtast öllum vel. Viljum við hjá Hnefaleikafélgi Reykjavíkur þakka öllum krökkunum fyrir frábæra keppni ásamt því að þakka dómurum og meðlimum annara félaga fyrir frábært mót.

Diploma keppni 09. des 2006

Laugardaginn 9. desember verður haldin hjá Hnefaleikafélagi Reykjavíkur stærsta mót í Diploma hnefaleikum ( 10- 15 ára ) sem haldið hefur verið á Íslandi.

Reiknað er með að keppendur verði um 30 talsins og koma þeir frá 4 félögum, það er Hnefaleikafélagi Reykjavíkur, Hnefaleikafélagi Reykjaness, Hnefaleikafélagi Akraness og Hnefaleikafélagi Hafnarfjarðar.

Keppnin byrjar kl. 14.oo og vonum við að sem flestir komi og styðji keppendur. Frítt er inn á keppnina.

Úrslit keppninar 02.12.2006

 Núna um helgina, nánartiltekið laugardagskvöldið 02. desember '06, var haldið fyrsta hnefaleikamót tímabilsins og fór það fram hjá Hnefaleikafélagi Reykjavíkur.

Boðið var uppá 7 bardaga og komu keppendur frá 4 félögum. Þarna voru nokkrir keppendur að stíga sín fyrstu skref í hringnum, sýndu margir þeirra góð tilþrif og var ekki betur að heyra en áhorfendur væru ánægðir með frammistöðu þeirra. Einnig voru þarna reyndari strákar að keppa, sáum við þar marga góða takta og var barist af mikilli ákefð líkaði áhorfendum það vel, kvöttu sína menn áfram með miklu klappi, stappi og hrópum.

Keppnin 2. desember

Keppni verður haldin 2. desember í húsnæði Hnefaleikafélags Reykjavíkur Faxafeni 8 Rvk. Húsið opnar kl 19.30 og hefjast bardagar kl. 20.oo. Alls verða 8 bardagar og eru keppendur frá 4 félögum; Hnefaleikafélagi Reykjavíkur, Hnefaleikafélagi Hafnarfjarðar, Hnefaleikafélagi Reykjaness og Hnefaleikafélagi Akraness.   

Aðgangseyrir kr. 1.000.

Hér fyrir neðan má sjá keppendur kvöldsins; 

Keppni 2. desember

Loksins Loksins - Keppni laugardaginn 2. des. 

Eins og margir vita stóð til að halda keppni 19. oktober síðast liðinn og áttu andstæðingarnir að vera Danir. Vegna erfiðleika hjá þeim við að samræma keppendalistann rann sú keppni út í sandinn en stefnt er að því að láta verða af henni fljótlega eftir áramót. 

Því varð ljóst að ekki þýddi annað en að koma á fót keppni innanlands og verður hún laugardaginn 2. desember næstkomandi í húsnæði Hnefaleikafélags Reykjavíkur, Faxafeni 8. 

Ingrid vann í Göteborg Svíþjóð

jpeg Eins og þeir hafa séð sem hafa fylgst með spjallþræðinum hennar Ingridar hér á síðunni vita þá tók stúlkan upp á því að fara til Stavangers í Noregi til náms ( mikill söknuður í H.R ). En þar fann hún ágætan boxklúbb og er sem sagt farin að keppa.

4-5 nóvember síðastliðinn fór klúburinn hennar til Göteborgar í Svíþjóð að keppa. Keppti hún þar 2 bardaga í sínum þyngdarflokki ( 57-60 kg.) og vann þá báða 3-0 og sýndi þeim þar að Íslandsmeistarinn nýkrýndi er enginn aukvissi.

Myndir frá kepninni í Diploma boxi 11.11 síðastliðinn

Keppni í diploma boxi var haldið í húsnæði HR þann 11. nóvember síðastliðinn og var Björn Helgason ( HR) mættur á keppnina og smellti þar nokkrum myndum af keppendum.

Nánari umfjöllun um keppnina og úrslit munu koma inn á síðuna á næstu dögum.

Ferð HR til Ólafsvíkur

Til gamans ætla ég að skella inn ferðasögu nokkurra einstaklinga úr HR þegar farið var til Ólafsvíkur í vor og íþróttin kynnt á vorfagnaði heimamanna:

 Það var komið vor um mánaðamótin apríl - maí, hiti úti og sólin skein þegar haft var samband við forsvarsmenn Hnefaleikafélags Reykjavíkur og spurt hvort við værum til í að kynna hnefaleika á vorfagnaði í Ólafsvík 20. maí næstkomandi.  

Keppni í Diploma boxi ( 15 ára og yngri)

Laugardaginn 11.11.06 kl.15.oo verður haldin kepnni í Diploma boxi í húsnæði Hnefaleikafélags Reykjavíkur í Faxafeni. Hnefaleikafélag Akranes mætir á staðinn með keppendur. Reiknað er með 5 viðureignum og hvetjum við alla þá sem áhuga hafa að mæta, en aðgangseyrir er enginn.

3L Expo sýning

test
Myndir frá sýningunni sem haldin var í Egilshöll aðra helgina í september síðastliðinn eru komnar inn á myndasíðuna.