Úrslit keppninnar í Keflavík
Í gær, laugardaginn 17. febrúar fór fram gríðarlega skemmtilegt mót í Keflavík þar sem áttust við annars vegar Íslendingar og Írar en hins vegar Litháar og Írar. Við hjá HR vorum með 2 keppendur á þessu móti.
Í fyrri bardaganum átti Þórir Fannar að keppa og var búinn að undirbúa sig vel undir það en fékk flensuna nokkrum dögum fyrir mótið og var ákveðið að morgni keppnisdags að hann myndi ekki taka þátt. Tók þá Gunnar Óli að sér að keppa í hans stað þrátt fyrir engan undirbúning. Það verður ekki af því skafið að þar fer mikill bardagakappi og stóð hann sig frábærlega vel og sýndi góð tilþrif, en þó fór svo að lokum að Gunnar Óli tapaði bardaganum þó ekki hafi miklu munað.
Kynningarmyndband í tilefni flutninga HR
Hnefaleikafélag Reykjavíkur flytur í nýtt og glæsilegt húsnæði, Suðurlandsbraut 6b, þann 1. mars næstkomandi. Í kveðjuskyni höfum við sett saman kynningarmyndband af einni af fjölmörgum æfingum HR í Faxafeni 8, en í leiðinni hlökkum við mikið til þess að takast á við nýja tíma!
Írarnir í Reykjanesbæ laugardagskvöldið 17.febrúar
Jæja þá erum við komnir með tímasetninguna á keppnunum í Reykjanesbæ á laugardaginn. Dagurinn byrjar með keppni í Dipoma boxi og hefst það kl. 14.oo. Um kvöldið verður síðan keppni í eldri flokkunum á milli Íra og einstaklinga frá hinum ýmsu félögum innan Í.S.Í. og hefst sú keppni kl.20.oo. Báðar keppnirnar fara fram í gömlu sundöllinni í Keflavík. Guðjón segir að við munum eiga von á mörgum skemmtilegum bardögum þar sem írarnir eru alltaf ansi líflegir keppnismenn.
Keppni gegn Írum í Reykjanesbæ
Laugardaginn 17. febrúar verður haldin keppni í Reykjanesbæ á vegum Hnefaleikafélags Reykjaness. Keppnin mun fara fram í nýrri og glæsilegri aðstöðu þeirra Reyknesinga sem er í gömlu sundhöllinni í Keflavík. Viljum við hjá Hnefaleikafélagi Reykjavíkur nota tækifærið og óska þeim til hamingju með þessa glæsilegu æfingaraðstöðu. Andstæðingarnir eru að þessu sinni frá Írlandi og keppa þeir við boxara frá ýmsum hnefaleikaklúbbum hér á landi og held ég að við getum átt von á mörgum skemmtilegum viðureignum. Síðar í v
Nýjustu fréttir af Ingrid
Helgina 26-28 janúar fór klúbburinn hennar Ingrid í æfingabúðir til Oslóar. Kvöldið 27 var síðan haldin keppni og keppti Ingrid þar einn bardaga og vann hann. Helgina 2 mars verður haldið meistaramót Noregs í senior flokknum og stefnir hún á að keppa þar og óskum við henni góðs gengis. Um daginn kom norska sjónvarpið í Dingo klúbinn og tók þar viðtöl og gerði þátt um heimsóknina. Við settum að gamni inn linkinn á þáttinn.
Keppni í Diploma boxi Laugardaginn 3 febrúar 2007
Laugardaginn 3 febrúar kl.15.oo verður haldin keppni í Diploma boxi í húsnæði Hnefaleikafélags Reykjavíkur Faxafeni 8. Keppendur verða frá 3 félögum það er Hnefaleikafélagi Reykjavíkur, Hnefaleikafélagi Hafnarfjarðar og Hnefaleikafélagi Akraness. Reiknað er með 13 viðureignum og eru allir sem áhuga hafa hvattir til að mæta og fylgjast með en frítt er inn á keppnina
Aðalfundur HR
Aðalfundur Hnefaleikafélags Reykjavíkur verður haldinn miðvikudaginn 31. janúar 2007 kl. 20:30 í húsnæði HR. Dagskrá fundarins verður eftirfarandi;
- Farið yfir starf liðins árs
- Kosin ný stjórn HR
- Kosið í keppnisnefnd, skemmtinefnd og aðrar nefndir
- Kynntur verður væntanlegur flutningur félagsins í nýtt húsnæði
- Kynnt verður dagskrá fyrir árið 2007
- Önnur mál
Hvetjum við alla félagsmenn til þess að mæta 31. janúar næstkomandi og leggja félaginu lið.
Hnefaleikakona ársins 2006
Ingrid Maria Mathisen var útnefnd Hnefaleikakona ársins 2006 í hófi á vegum Í.S.Í 28. desember síðastliðinn.
Ingrid Maria náði ekki bara þeim frábæra árangri á árinu að verða fyrsti Íslandsmeistarinn í hnefaleikum frá því þeir voru leyfðir aftur eftir rúmt 50 ára bann heldur varð hún jafnframt fyrsta konan til að verða Íslandsmeistari í sögu íþróttarinnar hér á landi. Auk þess sigraði hún nú í haust annars vegar á stóru móti í Gautaborg þart sem hún tók 2 bardaga og hins vegar á móti í Danmörku. Við þetta má svo bæta að hún hefur unnið mikið starf til þess að kynna íþróttina og er annar tveggja Íslenskra hnefaleikakeppenda sem hafa unnið 5 skráða bardaga á þessu ári, sem er besti árangur Íslenskra keppenda. Ingrid Maria er hnefaleikaíþróttinni, félagi sínu og síðast en ekki síst sjálfri sér til sóma hvort heldur er í keppni eða leik. Við óskum henni til hamingju með titilinn hnefaleikakona ársins 2006.
Vorönn HR að hefjast !!
Eftir frábæran árangur á síðasta ári leggur Hnefaleikafélag Reykjavíkur af stað í nýtt ár af fullum krafti!
Æfingar byrja samkvæmt stundatöflu 3. janúar. Sjá stundatöfluna hér.
Verðskrá:
| 16 ára og eldri | 20.400 kr. fyrir 4 mánuði |
| 13 - 15 ára | 15.500 kr. fyrir 4 mánuði |
| 10 - 12 ára | 12.500 kr. fyrir 4 mánuði |
| Stakur tími | 1.000 kr. sem gengur upp í kort |
JÓLAFRÍ
Hnefaleikafélag Reykjavíkur mun taka sér frí yfir jólahátíðina. Síðustu æfingar verða föstudaginn 22 desember. Munu æfingar síðan hefjast miðvikudaginn 3 janúar 2007.
Stjórn Hnefaleikafélags Reykjavíkur þakkar félagsmönnum, keppendum og starfsmönnum fyrir frábært ár ( 7 Íslandsmeistaratittlar og 5 silfur ásamt fjölda annarra sigra ). Óskum við öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs sjáumst kát á nýju ári.
Einnig viljum við þakka keppendum félagsmönnum og stjórnum annarra félaga fyrir samstarfið á árinu og óskum þeim gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.


