Svíþjóðarferð
Komnar eru inn myndir frá Svíþjóðarferðinni.
Íslandsmeistaramót ÍSÍ í hnefaleikum
Þann 4. maí 2007 verður Íslandsmeistaramót í hnefaleikum haldið í Ljónagryfjunni, Reykjanesbæ en búist er við að um 10 titlar verði veittir þetta kvöld. Forkeppni mótsins verður haldin helgina áður eða 28. og 29. apríl og þá í húsnæði Hnefaleikafélags Reykjaness, gömlu sundhöllinni í Reykjanesbæ.
Forkeppnin verður milli kl. 20:00 og 22:00 bæði laugardag og sunnudag en húsið opnar hálftíma fyrr og er frítt inn. Á aðalkvöldinu, föstudagskvöldinu 4. maí, opnar húsið kl. 19:30 en keppnin hefst stundvíslega kl. 20:00. Aðgangseyrir inn á aðalkeppnina er kr. 1.000 í forsölu og kr. 1.500 við innganginn, 500 kr. fyrir 12 ára og yngri. Forsala miða verður í afgreiðslu hnefaleikafélaganna fram yfir þriðjudaginn 1. maí.
Æfingarferð HR til Svíþjóðar
Að morgni fimmtudagsins 15. mars næstkomandi munu 10 boxarar frá Hnefaleikafélagi Reykjavíkur ásamt þjálfara og tveimur fararstjórum halda til Svíþjóðar, nánar tiltekið Uppsala, í 4 daga æfingarferð. Er þessi ferð liður HR í undirbúningi undir væntanlegt Íslandsmeistaramót en ferðin er unnin í samvinnu við hnefaleikaklúbbinn UIF boxning sem er jafnframt klúbbur Mikaels Höök hnefaleikadómara sem er Íslenskum hnefaleikamönnum vel kunnur. Einnig verður ef tími vinnst til heimsóttir klúbbar í Stokkhólmi og nágrenni.
Við vonumst til að geta birt myndir úr ferðinni í næstu viku.
Ingrid Maria varð í 3 sæti á Norska meistaramótinu
Helgina 2. til 4. mars var Norska meistaramótið í ólympískum hnefaleikum haldið í bænum Tönsberg ca. 1,5 klst. akstur frá Osló. Ingrid Mria Mathisen, hnefaleikakona úr HR sem varð Íslandsmeistari kvenna jr. í 57kg. flokki og hnefaleikakona ársins 2006 keppti í 54-57 kg flokki en hún keppti tvo bardaga á mótinu.
Í fyrri bardaganum keppti hún við Tonje Halvorsen, en fyrir þessa keppni hafði Tonje keppt 22 bardaga og var junior meistari þeirra Normanna 2005 og 2006. Leikar fóru þannig að Ingrid vann hana 13-5.
Í seinni bardaganum átti Ingrid við öllu erfiðari andstæðing að etja en það var Renata Metbye sem er rönkuð nr. 8 í Evrópu og nr. 13 í heiminum í 52 kg. flokki ásamt því að hún varð í 3 sæti á Evrópumeistaramóti með 40+ bardaga á bakinu. Leikar fóru þannig að Renata sigraði 22-8.
Við hjá Hnefaleikafélgi Reykjavíkur erum mjög stolt af árangri Ingrid á mótinu og óskum henni til hamingju með árangurinn. Ingrid vonast til að geta sent okkur einhverjar myndir af mótinu og ef hún getur það munum við setja það í myndaalbúmið okkar.
Myndir af keppninni 3 Mars.
Hér er linkur á ljósmyndir úr keppninni 3 mars síðastliðinn. Vonandi tekst mér að senda fljótlega inn video úr keppninni.
Keppni hjá Hnefaleikafélagi Hafnarfjarðar 3 mars næstkomandi.
Laugadaginn 3 mars verður haldin keppni hjá Hnefaleikafélagi Hafnarfjarðar. Búast má við mörgum mjög skemmtilegum og spennandi bardögum þar sem nokkrir af okkar bestu hnefaleikamönnum munu leiða saman hesta sína Þar. Nánar um það síðar.
Flutningur HR að Suðurlandsbraut 6b
Á morgun 1. mars flytur Hnefaleikafélag Reykjavíkur í nýtt og glæsilegt húsnæði. Nýja staðsetningin er að Suðurlandsbraut 6b bakhús. Við munum áfrfam deila þar húsakynnum með Boot camp enda hefur það samstarf verið með ágætum og samnýtast áhöld og tæki mjög vel.
Örlítil breyting verður á stundartöflu félagsins við þennan fluttning og má þar helst telja að byrjendahóparnir á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum færist til kl. 19.00 og framhaldið og keppnishópurinn byrjar kl. 19.30 á sömu dögum. Barna og byrjendahóparnir á þriðjuögum, fimmtudögum og laugardögum verða óbreyttir.
Keppnin helgina 24.02.2007
Um síðustu helgi fór fram keppni fyrir byrjendur og tókst hún í allastaði mjög vel. Gott var fyrir þessa sem voru búnir með 1-2 bardaga og eins þá sem voru að keppa sína fyrstu bardaga að taka úr sér hrollinn fyrir Íslandsmeistaramótið sem verður haldið 31 mars næstkomandi. Ljóst er að þarna komu fram nokkrir mjög efnilegir hnefaleikamenn og er gaman að sjá ný andlit í keppendaflórunni. Bardagar voru 7 talsins og var Viðar Freyr Viðarsson frá Akranesi valinn af dómurum hnefaleikamaður kvöldsins og óskum við honum til hamingju með það.
Gamla húsið kvatt með keppni laugardaginn 24 febrúar kl.20.oo
Í tilefni af fluttningi Hnefaleikafélags Reykjavíkur í nýtt og glæsilegt húsnæði verður haldin keppni í Faxafeni 8 til þess að kveðja gamla húsið. Þar hafa margar skemmtilegar keppnir verið haldnar og margt skemmtilegt gerst og er víst að margir munu sjá eftir gamla húsinu. Óhætt held ég sé að segja að flestir þeir sem hafa æft eða keppt í hnefaleikum eftir að þeir voru leifðir aftur hafi þar komið eitthvað við sögu.
Þessi keppni verður með svolítið öðru sniði en fyrri keppnir þar sem áherslan er fyrst og fremst á að leyfa ungum og efnilegum boxurum að spreyta sig. Því verða flestir bardagar á milli einstaklinga með 0-2 bardaga en einnig er verið að athuga hvort einhverjir reynsluboltar séu til í að taka nokkur spor.
Video af keppninni gegn Írum
Víkurfréttir eru með fína frétt af keppninni gegn Írum á laugardaginn var og set ég hér inn link sem tengir sig við video hjá þeim


