Stundatafla uppfærð

Nú fer Hnefaleikafélag Reykjavíkur af stað á fullu næstkomandi mánudag með breyttri stundatöflu.

Í nýju töflunni þá má helst benda á tímabreytingu á Diploma tímunum sem eru nú klukkutíma fyrr en í fyrra (frá 16:00 til 17:00)

Erum við nú komin úr sumarstundatölfunni yfir í veturtöfluna með auknum æfingum.

Meira er hægt að sjá, hér á vinstri hönd, undir Stundatafla

Sumarfrí

Vegna sumarfrís þjálfara H.R höfum við ákveðið að gera hlé á æfingum hjá félaginu á tímabilinu 20 Júlí til 7 ágúst.

Æfingar munu síðan hefjast aftur föstudaginn 8 ágúst. Vonumst við þá til að sjá alla hressa og káta og tilbúna til átaka.

Stjórn Hnefaleikafélags Reykjavíkur. 

Sumartími HR

Yfir sumartímann munu allir hópar HR verða sameinaðir á æfingar milli klukkan 19:00 og 20:00 mánudaga, miðvikudaga og föstudaga (sjá nánar stundatöflu til vinstri). Mun þessi tími taka gildi frá 26. maí 2008.

Gleðilegt sumar !

 

Íslandsmót

 

 

Undankeppnin verður haldin hjá Hnefaleikafélagi Hafnarfjarðar

föstudaginn 28. mars og hefst kl 20:00

 

Jólafrí og nýtt ár

Jólafrí í Hnefaleikafélagi Reykjavíkur verður frá og með 21. desember til og með 3. janúar og falla niður æfingar á því tímabili.

Æfingar byrja svo af fullum krafti aftur 4. janúar samkvæmt stundatöflu.

Hnefaleikafélag Reykjavíkur óskar öllum gleðilegra jóla og þakkar fyrir góðar stundir á árinu.

Ísland vs. Danmörk

Laugardagskvöldið 24. nóvember verður haldin boxkeppni þar sem aðilar frá flestum íslensku hnefaleikafélögunum mæta dönsku liði í húsnæði Hnefaleikafélags Hafnarfjarðar. Frá Hnefaleikafélagi Reykjavíkur verða 3 keppendur, en þeir eru: Kevin Freyr, Jón Pétur og Lárus Mikael. Einnig átti Davíð Rafn að keppa en andstæðingur hans forfallaðist á síðustu stundu.

Húsið opnar kl. 19:00 og hefst keppnin stundvíslega kl. 19:30. Aðgangseyrir er kr. 1.200 fyrir fullorðna. Nánari upplýsingar um keppendalista ofl. má finna hér.

Við hvetjum alla okkar stuðningsmenn til þess að mæta og styðja Íslendingana!

Keppni 20. október 2007

Laugardaginn 20. október verður haldin keppni í nýrri aðstöðu HFH, Dalshrauni 10, Hafnarfirði. Annars vegar er diploma keppni kl. 14 og hins vegar ólympískir bardagar kl. 19:30. 

Frá Hnefaleikafélagi Reykjavíkur verða 3 keppendur, Daði Rafn Björgvinsson, Lárus Mikael Daníelsson og Jón Pétur Vágseið. Hvetjum við alla félagsmenn og aðra að mæta og hvetja okkar menn til dáða.

Sjáumst á Laugardaginn! 

Boxað á Ljósanótt

Þann 31 ágúst síðast liðinn var haldin í Reykjanesbæ hnefaleikakeppni milli Íslenskra boxara annars vegar og danskra hins vegar. Ekki er hægt að segja annað en að þeir íslensku stóðu sig með mikilli prýði og sýndu mörg góð tilþrif.

Við hjá Hnefaleikafélagi Reykjavíkur vorum með 1 keppenda á þessu móti, Gunnar þór Þórsson og var hann að keppa þarna sinn 3 bardaga á móti dönskum strák sem var að keppa sinn 11 bardaga. Má með sanni segja að Gunnar kom sá og sigraði þann danska mjög sannfærandi 3-0. Má með sanni segja að þarna fari einn af okkar efnilegust ungu hnefaleikamönnum og verður gaman að fylgjast með honum í framtíðinni.

Meðfylgjandi er linkur inn á youtube á bardaga Gunnars og Patricks.

http://www.youtube.com/watch?v=wZfQWGtWDog

Meðal hinna dönsku þjálfara var meðal annars einn af okkar bestu hnefaleikamönnum Þórður ( Doddi ) en hann hefur verið að keppa í danmörku undanfarin ár en virðist hafa lagt hanskana á hilluna og snúið sér að þjálfun. Ég vona að hann fari að flytja á klakann aftur því það er alltaf pláss fyrir góða þjálfara hér heima.

Æfingar að hefjast - haustið 2007

Æfingar fyrir haustið 2007 munu hefjast 3. september næstkomandi skv. nýrri stundatöflu. Miklar væntingar eru gerðar til komandi vetrar þar sem meðal annars verða kynntar nýjungar á æfingum, stefnt verður að keppni í hverjum mánuði ásamt því að farið verður erlendis í æfingabúðir og/eða keppnir. Að sjálfsögðu verður svo stefnt að frábærum árangri á komandi Íslandsmeistaramóti á keppnistímabilinu.

Gangi ykkur vel og verið velkomin í Hnefaleikafélag Reykjavíkur!

Æfingar í sumar

Engar æfingar verða mánudaginn 28. maí, annan í hvítasunnu, en æfingar samkvæmt nýrri stundatöflu hefjast strax miðvikudaginn 30. maí.

Æfingar yfir sumartímann verða kl. 19:00 mánudaga, miðvikudaga og föstudaga fyrir alla hópa. Tveir þjálfarar munu sjá um kennsluna og skipta hópnum niður eftir þörfum. Sjá nánar í 'stundatafla'.