Hnefaleikakeppnin um síðustu helgi

Keppnin fór vel fram í alla staði, þó má segja að Dönum hafi gengið betur í heildina. Mikil stemming myndaðist og létu áhorfendur vel í sér heyra. Að öðrum bardögum ólöstuðum varð allt vitlaust í síðasta bardaganum sem var á milli Árna Ísakssonar og Filip Jörgensen. Þó eitthvað megi kannski segja að Árna hafi vantað upp á tæknina þá vann hann það sannarlega upp með gríðarlegri keppnishörku og ótrúlegu úthaldi, skrokkhöggin hjá honum voru algjört nammi og held ég að sjaldan eða aldrei  hafi Daninn lent í öðru eins, fékk aldrei sekúntu pásu til að jafna sig.

Það er af gengi okkar manna að segja að Davíð Rafn og Gunnar Guðlaugs voru með sýningarbardaga og gekk hann í alla staði mjög vel.

Valentyn stóð sig mjög vel miðað við að þetta var hans fyrsti bardagi en varð að láta í minnipokan fyrir Dananum

Boxkeppni 31 janúar 2009

Ísland  V.S  Danmörk

Þann 31 janúar næstkomandi kl. 19.oo verður haldin boxkeppni í húsnæði Hnefaleikafélags Reykjaness ( gamla sundlaugin ), búast má þar við mörgum ansi snörpum viðureignum.

Keppendur frá Danmörku verða allt að 11 en einnig verða bardagar þar sem báðir keppendur verða Íslenskir þannig að það geta orðið allt að 11-18 viðureignir.

Nánari keppendalisti verður settur hér inn strax og hann berst.

Frábær æfingarferð til Laugarvatns

 

Myndir úr ferðinni

Video úr ferðinni

 

Óhætt er að segja að vel hafi tiltekist í þessum fyrstu sameiginlegu æfingarbúðum hnefaleikafélaganna á Íslandi. Ekkert var slegið af, byrjað strax á föstudagskvöld með góðri æfingu. Hófst laugardagsmorguninn kl. 7 með útihlaupi síðan kl. 10 var tekin tveggja tíma æfing sem samanstóð af mikklu sparri og að því loknu erfiðri þrekæfingu. seinnipartinn var síðan léttari æfing sem lauk með boltaleik. Kvöldinu var síðan eitt í spil og að horfa á gamlar boxkeppnir. Sunnudagurinn var með svipuðu sniði og laugardagurinn, en að lokum var haldið heim á leið uppúr kl. 16.

Hnefaleikamaður ársins 2008

Í kvöld föstudaginn 2 janúar 2009 á Grand hótel Reykjavík voru heiðraðir og veitt viðurkenningu íþróttamönnum og konum sérsambanda og sérgreinanefnda Í.S.Í

Hnefaleikanefnd Í.S.Í komst að þeirri niðurstöðu að hnefaleikamaður ársins 2008 skildi vera valinn Gunnar Þór Þórsson frá Hnefaleikafélagi Reykjavíkur.

Vill stjórn H.R. að því tilefni óska Gunnari Þór Þórssyni til hamingju með titilinn Hnefaleikamaður ársins 2008.

 

Video frá keppnum

 

Smá ágrip af ferli Gunnars Þórs árið 2008

22 janúar hélt hann ásamt fleirum frá H.R á stórt alþjóðlegt mót í Svíþjóð, KP CUP 08 og tapaði hann þar naumlega fyrir sterkum andstæðingi.

Æfingar byrja á ný mánudaginn 5 janúar

Þjálfarar og stjórn H.R óskar ykkur öllum gleðilegs nýs árs þökkum fyrir árið sem var að líða.

Mánudaginn 5 janúar byrja æfingar að nýju. 

Gerðar verða þær breytingar að byrjenda og fittnesbox verður frá kl. 19.00 til 20.00 alla virka daga og munu Eyrún og Gummi Kári ásamt Fabio sjá um þá hópa.

Keppnishópurinn verður frá kl. 19.30 til kl. 21.00 og mun Fabio sjá um þjálfun þeirra.

Einnig ætlum við að gera breitingar á Diploma tímunum en þeir verða framvegis á þriðjudögum og fimmtudögum kl.19.00 til 20.00 og mun Gunnar Þór Þórsson sjá um að þjálfa þann hóp.

ATH breyttir tímar á laugardögum

Hnefaleikafélag Reykjavíkur hefur nýlega þurft að breyta tímum sínum á laugardögum.

Tímarnir eru núna frá 12:00 til 13:00 en ekki 13:00 til 14:00

Breytingin verður virk frá og með deginum í dag, því verður æfingin þann 18. á nýja tímanum.

Videoclips

Ég setti hérna inn smá videomynd sem ég bjó til af bardaganum hans Gunnars Thors en ég kem til með í næstu viku að búa til nýtt myndband með hinum tveimur einnig

Video

Úrslit keppninnar 04.10.08

Laugardaginn síðastliðinn fór keppnin fram í Hafnarfirði og tókst hún í allastaði mjög vel, var fín mæting og skapaðist góð stemmning eins og alltaf og var mikið um hvatningahróp og læti. Til stóð að bardagarnir yrðu 14 en vegna veikinda eins keppendans voru þeir eingöngu 13 sem má teljast nokkuð gott. Keppendu okkar H.R manna stóðu sig frábærlega og unnu þeir allir sína bardaga. 

Davíð Finnbogason  H.R            Vs.       Kristján Orri Arnarson  H.F.H               2-1

Davíð Rafn Björgvinsson H.R    Vs.      Gunnar Kolbeinn Kristinsson  H.F.Æ     3-0

Gunnar Þór Þórsson  H.R           Vs.      Mikkel Gregersen Gladsaxe BK             2-1

Óskum við þeim til hamingju með sigrana og vonum að þeim komi til með að ganga vel í vetur.

Hnefaleikakeppni í Hafnarfirði laugardaginn 4 okt.

Laugardaginn 4 okt. verður haldin Hnefaleikakeppni í húsnæði Hnefaleikafélags Hafnarfjarðar að Dalshrauni 10 og hefjast bardagar kl 18.00 miðaverð er kr. 1000

Alls verða 14 bardagar  5 diploma og 9 Olympiskir.

Við hjá Hnefaleikafélagi Reyjavíkur verðum með þrjá keppendur á mótinu.

Gunnar Þór Þórsson

Davíð Rafn Björgvinsson

Davíð Finnbogason

Við megum búast við nokkrum spennandi bardögum á keppninni  og hvetjum við sem flesta til að mæta á keppnina. Þarna verða 2 gestakeppendur frá Danmörku og munu þeir keppa við Gunnar Þór Þórsson H.R  sem varð  íslandsmeistari í sínum þyngdarflokki á Íslandsmeistaramótinu síðastliðið vor og var jafnframt valinn besti keppandi mótsins og handhafi Bensabikarsins og einnig mun Daníel Þórðarson H.F.R keppa sýningarbardaga við hinn danann.