Æfingabúðir um helgina
Jæja þá er komið að því, næstu helgi dagana 7-9 ágúst verða haldnar sameiginlegar æfingabúðir fyrir væntanlega keppnishópa hnefaleikafélaganna.
Til stóð að halda æfingabúðirnar á laugarvatni eins og í janúar síðastliðnum en á síðustu stundu brást með gistingu og var þá brugðið á það ráð að þiggja boð Æsis manna og halda æfingarbúðirnar í húsnæði þeirra frekar en að hætta við. Aðal umsjónarmaður og þjálfari búðanna verður Þórður Sævarsson ( Doddi ) og er óhætt að segja að ef tekst til eins og á Laugarvattni verður þetta skemmtileg helgi.
Frá okkur í H.R munu taka þátt 10 boxarar og með þeim verða 4 aðstoðarmenn og óskum við þeim öllum skemmtilegrar helgar og sjáum þau þreytt en hress á æfingu mánudaginn 10 ágúst en þá munu æfingar hefjast aftur að fullu eftir gott sumarfrí.
Sumardagskráin
Frá og með mánudeginum 8 júní höfum við ákveðið að gera breytingu á sumardagskránni þannig að æfingar verða.
Mánudaga frá kl. 19 - 20.30
Þriðjudaga frí
Miðvikudaga frá kl. 19 - 20.30
Fimmtudaga frí
Föstudaga frá kl. 19 - 20.30
Vegna sumarleifa hjá þjálfurum gerum við hlé á æfingum frá mánudeginum 13 júlí til mánudagsins 10 ágúst en þá hefjum við æfingar aftur að fullu.
Gleðilegt sumar.
Íslandsmeistaramótið á Laugardaginn
Íslandsmeistaramótið í Hnefaleikum verður haldið laugardaginn þann 18. apríl í Hnefaleikahöllinni við Framnesveg í Keflavík ( Gamla Sundhöllin)
Aðeins þeir bestu munu mætast og berjast um titilinn!
Þetta stór mót hefst klukkan 20:00
húsið opnar kl:19:00
Aðgangseyrir verður aðeins 1000 kr.
Hvetjum við alla til þess að mæta, það verður örugglega gríðarlega góðir bardagar og mikil stemmning.
Niðurstöðurnar úr undanúrslitunum 2009
Jæja gott fólk þá eru niðurstöðurnar úr þessum bardögum komnar. Eins og búast mátti við voru þetta gríðarlega grimmir bardagar og var vel tekið á því.
Úrslitin í 75 kg flokknum fóru þannig að Danni frá H.F.R vann sigur og keppir þar með við Sæþór frá H.F.V um Íslandsmeistaratitilinn.
Kolli frá Æsi vann sigur í 91 kg flokknum og kemur hann því til með að keppa við Davíð Rafn frá H.R um Íslandsmeistaratitilinn.
íslandsmeistaramótið í hnefaleikum undanúrslit
í kvöld fimmtudag verða 2 bardagar í undanúrslitum Íslandsmeistaramótsins í hnefaleikum. Bardagarnir verða haldnir í húsnæði Hnefaleikafélags Hafnarfjarðar og byrja þeir kl. 21.00 og kostar ekkert inn. Þeir sem keppa eru Gunnar Kolli Kristinsson Æsi V.S Bjarni Kristjánsson Æsi í 91 kg. flokki og Daníel Þórðarson H.F.R V.S Axel Logi Þorsteinson Æsi og má búast við annsi snörpum viðureignum. Hvetjum við alla til að mæta og fylgjast með og kvetja strákana.
íslandsmeistaramótið í hnefaleikum fjórðungsúrslit
í gærkveldi var haldið í húsnæði hnefaleikafélags Hafnarfjarðar fjórðungsúrslit í 75 kg. flokki og áttust þar við Sæþór Ólafur Pétursson H.F.V og Matthías B. Arnarson Æsi. Bardaginn var gríðar harður og var greinilegt að báðir keppendur lögðu allt í bardagann. Mikil stemning myndaðist meðal áhorfenda og voru keppendur kvattir áframm með hrópum og köllum, en leikar fóru að endingu Þannig að Sæþór sigraði 2-1
Íslandsmeistaramótið í hnefaleikum 2009
Jæja gott fólk þá fer það að bresta á íslandsmeistaramótið í hnefaleikum, en það verður haldið Laugardaginn 18 apríl næstkomandi.
Vegna fjölda þáttakenda í sumum þyngdarflokkum verður haldin undankeppni á fimmtudaginn næstkomandi, allar nánari upplýsingar mun ég setja inn í byrjun næstu viku.
Búast má við að þarna verði nokkrir ansi snarpir bardagar og er óhætt að segja að þarna munu hnefarnir tala.
Hvet ég sem flesta til að fylgjast með nánari upplýingum og mæt til að hvetja sýna menn.
Keppnin á Laugardagskvöldið
Kappnin fór í allastaði mjög vel fram, margir skemmtilegir bardagar. Það er af okkar mönnum að frétta að Jón Pétur stóð sig vel en lét undan síga í þriðju lotu og tapaði sínum bardaga.
Steinar Thors var að keppa sinn fyrsta bardaga og stóð sig mjög vel, sýndi marga góða takta en tapaði sýnum bardaga.
Óhætt er að segja að Sæþór sýndi það að hann hefur engu gleymt þrátt fyrir að hafa ekki keppt lengi, hann kom sá og sigraði útboxaði sinn andstæðing sem varð að játa sig sigraðan í annari lotu og var Sæþór valinn hnefaleikamaður kvöldsins.
Keppni á Laugardag
Hnefaleikakeppni á laugardaginn í gömlu sundlauginni í Keflavík. Húsið opnar kl. 18,00 og byrja bardagar kl. 19,00
Skorum við á alla að mæta, fylgjast með og hvetja sína menn.

Samnorrænar Æfingabúðir helgina 6-8 febrúar
Föstudaginn 6 febrúar næstkomandi munu 3 hnefaleikamenn frá Hnefaleikafélagi Reykjavíkur ásamt fylgdarliði halda til Kaupmannahafnar og taka þar þátt í samnorrænum æfingabúðum.
Æfingabúðirnar verða undir stjórni jimmi Bredahl en hann er fyrrverandi atvinnuboxar, var EUB meistari í light featherwwight og einnig WBO meistari í sama þyngdarflokki en hann tapaði þeim titli í bardaga við Oscar De La Hoya.
Held ég að mér sé óhætt að segja að þetta verður mikið æfintýri fyrir strákana og mikill reynslubrunnur.


