Íslandsmeistaramótið í kvöld á Broadway

Íslandsmeistaramótið verður haldið á Broadway í kvöld. Húsið opnar kl. 19.00 og hefst mótið síðan kl. 20.00. Miðaverði er stillt í hóf en einungis kostar kr. 1000 inn.Hvetjum við sem flesta til að vera tímanlega í því til að ná sér í sæti á góðum stað. Búið er að setja húsið upp þannig að þetta verður sannkölluð ljónagrifja og eru áhorfendur hvattir til að láta vel í sér heyra. Mun það félag sem er með öflugasta áhorfendahópinn fá bikar í verðlaun ( bestir á bekknum )

Æfingar falla niður

Vegna Íslandsmeistarmótsins  þann 21 apríl á Broadway falla æfingar niður á miðvikudaginn, síðasta vetrardag. Viljum við hvetja alla til að mæta á keppnina og hvetja okkar fók til dáða. Veitt verða verðlaun farandbikar til þess félags sem verður með öflugasta stuðningsliðið.

Íslandsmeistaramótið í hnefaleikum 2010

Íslandsmeistaramótið í hnefaleikum verður haldið seinasta vetrardag á Brodway í Ármúla og opnar húsið kl. 19.00

Miðaverð á lokakeppni (á Broadway) er kr. 1.000 og verða miðar seldið við innganginn.

Íslandsmótið í hnefaleikum 2010 - úrslit, miðvikudaginn 21. apríl á Broadway.

1. viðureign Léttvigt
Rautt horn Dagur Freyr Bjarnason HFÆ
Blátt horn Daníel Hauksson HFH

2. viðureign Veltivigt
Rautt horn Adam Freyr Daðason HFH
Blátt horn Arnór Már Grímsson HAK

3. viðureign Léttmillivigt
Rautt horn Hafsteinn Smári Óskarsson HFR
Blátt horn Gunnar Georg Gray HFÆ

4. viðureign Yfirþungavigt
Rautt horn Baldur Fannar Arnarsson HFH
Blátt horn Kolbeinn Kárason HR

5. viðureign Veltivigt
Rautt horn Arndís Birta Sigursteinsdóttir HR
Blátt horn Berglind Frances Aclipen HFÆ

6. viðureign Léttvigt
Rautt horn Adrian Sienda HR

Úrslit undankeppni Íslandsmeistaramótsins 2010

Undanúrslit Íslandsmeistaramótsins í hnefaleikum fór fram í gær Laugardaginn 17 apríl í húsnæði hnefaleikafélags Hafnarfjarðar.

 

Gríðarleg stemmning var á svæðinu og hvöttu áhorfendur sitt fólk óspart til dáða með miklum látum, var greinilegt að það skilaði sér vel til keppenda þar sem bardagarnir voru ansi harðir og skemmtilegir

 

Óhætt er að segja að stemmningin í gær gaf fyrirheit um ansi skemmtilega stemmningu á úrslitakvöldinu sem fer fram miðvikudaginn næstkomandi 21 apríl  á Broadway.

 

ég set hér inn videolink sem verður með myndböndum frá undanúrslitunum.

 

Undankeppni Íslandsmeistaramótsins í hnefaleikum 2010

Laugardaginn 17 apríl næstkomandi verður haldin undankeppni Íslandsmeistaramótsins í hnefaleikum2010. Keppnin mun fara fram í húsnæði Hnefaleikafélags Hafnarfjarðar að Dalshrauni 10 og hefst keppnin kl. 20.00 en húsið opnar kl. 19.00. Bardagar verða alls 7 og má búast við mörgum snörpum viðureignum þar sem til mikils er að vinna. Við hvetjum alla félagsmenn og áhugamenn um bardagaíþróttir til að mæta og hvetja fólk til dáða.

Íslandsmeistaramótið í hnefaleikum 2010

Undankeppni 17. apríl. Lokakvöld 21. apríl, síðasta vetrardag á Broadway. Takið dagana frá.


Keppnin 13 mars í Keflavík

Gísli Rúnar og Kolli unnu báðir sína bardaga, en að öðru leyti er það af keppninni að segja að hún var mjög góð sem lokakeppnin í undirbúningi keppenda og þjálfara fyrir Íslandsmeistaramótið sem verður haldið 21 apríl næstkomandi.

video af bardaganum hans Kolla.

Hnefaleikakeppni 13 mars í Keflavík

Sælt veri fólkið frábær keppni um síðustuhelgi og góð frammistaða

Næsta Laugardag verður keppni í Keflavík og keppa frá okkur þeir Gísli Rúnar og Kolbeinn við hvetjum alla til að mæta og hvetja strákana, þetta verður örugglega spennandi og skemmtilegt mót.

 

Hnefaleikakeppni laugardaginn 6 mars hjá H.R

Keppendalisti 6 mars 2010

Blátt horn                                                     Raut horn

Léttvigt

1. Adrian Sienda HR                  VS               Edward Ingi Torfason  HAK

Þungavigt

2. Sigurjón Arnórsson HR            VS              Baldiur Örn Samúelsson  HFL

Léttvigt

3.  Daníel Hauksson HFH             VS              Elías Samsudin HFÆ

Yfirþungavigt

4. Kolbeinn Kárason HR                VS              Örnólfur Þorleifsson HFÆ

HlÉ

Millivigt

5. Tom Matthews HR                      VS            Stefán Atli Ólason HAK

Létt veltivigt

6. Gísli Rúnar Gunnarsson HR          VS            Arnór Már Grímsson HAK

Létt veltivigt

7. Arndís Birta Sigursteinsdóttir HR   VS           Berglind Frances Aclipen HFÆ

Létt þungavit

Hnefaleikakeppni laugardaginn 6 mars hjá H.R

Jæja þá er loksins komið að því að við hjá Hnefaleikafélagi Reykjavíkur höldum keppni en við höfum ekki haldið keppni síðan við vorum í Faxafeni.

Keppnin núna verður haldin í husnæði okkar að Suðurlandsbraut 6 b ( á bakvið Nings, í sama húsnæði og bootcamp ) óhætt er að segja að búast megi við mörgum snörpum viðureignum þar sem að keppendur verða frá flestum félögum landsins. Gaman er frá því að segja að Skagamenn eru aftur að koma upp og eru að senda keppendur til þáttöku og vonumst við til þess að það verði góður gangur hjá þeim á komandi árum.

Húsið opnar kl. 19.30 og munu bardagar byrja kl.20.00   Miðaverð er kr. 1000

Ég set hér inn keppendalistann eins og hann blasir við í dag en þó með þeim fyrirvara að einhverjaer breytingar geta orðið og að þetta er ekki endanleg niðurröðun bardaga.

Tom Wolbergs HFR               V.S   Vikar Karl Sigurjónsson HR

Kolli Kárason HR                  V.S   Örmólfur Þorleifsson HAK