You are hereEfni / Úrslit undankeppni Íslandsmeistaramótsins 2010

Úrslit undankeppni Íslandsmeistaramótsins 2010


By Hnefaleikar - Posted on 19 April 2010

Undanúrslit Íslandsmeistaramótsins í hnefaleikum fór fram í gær Laugardaginn 17 apríl í húsnæði hnefaleikafélags Hafnarfjarðar.

 

Gríðarleg stemmning var á svæðinu og hvöttu áhorfendur sitt fólk óspart til dáða með miklum látum, var greinilegt að það skilaði sér vel til keppenda þar sem bardagarnir voru ansi harðir og skemmtilegir

 

Óhætt er að segja að stemmningin í gær gaf fyrirheit um ansi skemmtilega stemmningu á úrslitakvöldinu sem fer fram miðvikudaginn næstkomandi 21 apríl  á Broadway.

 

ég set hér inn videolink sem verður með myndböndum frá undanúrslitunum.