You are hereForums / Keppnir / Hnefaleikakeppni laugardaginn 6 mars hjá H.R

Hnefaleikakeppni laugardaginn 6 mars hjá H.R


By Hnefaleikar - Posted on 27 February 2010

Jæja þá er loksins komið að því að við hjá Hnefaleikafélagi Reykjavíkur höldum keppni en við höfum ekki haldið keppni síðan við vorum í Faxafeni.

Keppnin núna verður haldin í husnæði okkar að Suðurlandsbraut 6 b ( á bakvið Nings, í sama húsnæði og bootcamp ) óhætt er að segja að búast megi við mörgum snörpum viðureignum þar sem að keppendur verða frá flestum félögum landsins. Gaman er frá því að segja að Skagamenn eru aftur að koma upp og eru að senda keppendur til þáttöku og vonumst við til þess að það verði góður gangur hjá þeim á komandi árum.

Húsið opnar kl. 19.30 og munu bardagar byrja kl.20.00   Miðaverð er kr. 1000

Ég set hér inn keppendalistann eins og hann blasir við í dag en þó með þeim fyrirvara að einhverjaer breytingar geta orðið og að þetta er ekki endanleg niðurröðun bardaga.

Tom Wolbergs HFR               V.S   Vikar Karl Sigurjónsson HR

Kolli Kárason HR                  V.S   Örmólfur Þorleifsson HAK

Steinar Thors HR                  V.S   Valentyn Bukavin  HFÆ

Sigurjón Arnórsson HR         VS   Finnur Jónsson   HR

Daníel Hauksson HFH             VS   Elías Samsudin  HFÆ

Tom Matthews   HR                VS    Stefán Atli Ólason  HAK

Gísli Rúnar Gunnarsson HR     VS    Arnór Már Grímsson HAK

Berglind Frances Aclipen HFÆ  VS   Arndís Birta Sigursteinsdóttir HR

Adrian Sienda  HR                   VS  Edward Ingi Torfason HAK

 

Tags