You are hereEfni / Frábær árangur á KPcu 2010 í Svíþjóð
Frábær árangur á KPcu 2010 í Svíþjóð
Strákarnir Gunnar og Gísli stóðu sig glæsilega á mótinu í Svíþjóð. video linkur á bardagana.
Leikar fóru þannig að á Laugardeginum keppti Gísli Rúnar við Strák frá Svíþjóð Fredrik Lundström í C classa senior 64 kg. og tapaði fyrir honum, svíinn var óvenju hávaxinn nærri 30 cm hærri en Gísli og er óhætt er að segja að Gísli stóð sig frábærlega á móti honum. Mikael Hök dómari sem Íslenskum boxáhugamönnum er vel kunnur gat síðan útvegað Gísla annan bardaga á sunnudeginum og þá við Senai Netzereat Svíþjóðm, strák í næsta flokki fyrir ofan, B classa og er skemmst frá því að segja að Gísli vann hann örugglega 3-0 og er það frábær árangur.
Gunnar þór Þórsson keppti á Laugardeginum við Halilov Murad strák frá Svíþjóð og kepptu þeir í 69 kg B classa og vann Gunnar hann örugglega 3-0 og vann sér með því rétt til að keppa til úrslita á Sunnudeginum í sínum flokki. Á sunnudeginum keppti hann við Sarafraz Kiavash frá Svíþjóð og vann hann einnig örugglega 3-0 og vann þar með sinn þyngdarflokk.
Við hjá H.R óskum piltunum til hamingju með frábæra ferð og glæsilegan árangur.


