You are hereEfni / Keppnisferð til Uppsala í Svíþjóð
Keppnisferð til Uppsala í Svíþjóð
Föstudaginn næstkomandi þann 22 janúar munu þeir Gunnar Þór Þórsson og Gísli Rúnar Gunnarsson ásamt Fabio halda utan á tveggja daga mót sem verður haldið í Uppsölum í Svíþjóð. Þetta er í þriðja sinn sem við sendum keppendur á þetta mót sem heitir KP cup 2010 en það er ávalt haldið í lok janúar. Einnig sendum við 10 keppendur í æfingabúðir þangað árið 2007 og var það mikil reynsla fyrir keppendurna. Við óskum þeim Gunnar og Gísla alls hins besta.


