You are hereEfni / Æfingabúðir á Laugarvatni

Æfingabúðir á Laugarvatni


By Hnefaleikar - Posted on 18 January 2010

Video linkur.Helgina 8 til 10 janúar síðastliðinn mættu á Laugarvattni keppnisfólk frá 5 hnefaleikafélögum í æfingabúðir alls um 30 manns plús þjálfarar. Þetta er í annað skiftið sem félögin hafa æfingabúðir með þessu sniði á Laugarvatni. Fór þetta í allastaði vel fram undir sterkri stjórn Dodda ( Þórðar Sævarssonar ) eins og í fyrra skiptið. Fólk mætti á staðinn kl. 17.00 á föstudaginn ( nema þeir sem fóru lengri leiðina he he ) og hófst fyrsta æfingin kl. 18.00 og stóð yfir í 2 tíma, síðan var haldið heim í hús og fenginn kvöldverður og að honum loknum fann fólk sér eitthvað til dundurs þeir sem voru ekki of þreyttir. Laugardagurinn hófst síðan með morgunhlaupi kl. 07.00 og var dagskráin þannig að æfing var frá kl.10.00 til kl. 12.00 og síðan aftur frá kl. 15.00 til kl.17.00. Sunnudagurinn var með sama sniði nema hvað seinni æfingin hófst kl. 14.30 og stóð til kl. 16.00 var hún með öllu léttara yfirbragði en hinar æfingarna meira um leiki og léttar æfingar. Óhætt er að segja að fólk hafi skemmt sér vel um helgina, tekið vel á því og gefið sér tíma til  að kynnast betur hvert öðru. Við hjá Hnefaleikafélagi Reykjavíkur Þökkum Dodda og starfsfólkinu á Laugarvatni fyrir frábæra helgi, frábærar veitingar og aðstöðu.