You are hereEfni / Hnefaleikakeppni 17 okt.09
Hnefaleikakeppni 17 okt.09
Þann 17 oktober síðastliðinn var haldin keppni hjá Hnefaleikafélaginu Æsi. Keppendur voru þar frá 4 félögum og er óhætt að segja að hún hafi farið í alla staði vel fram. Tveir keppendur voru þar frá okkur, þeir Pétur Þór Sævarsson og Gísli Rúnar Gunnarsson. Okkar menn unnu báðir sína bardaga Pétur marði nauman sigur á Sigurbirni Richter frá HFH og Gísli Rúnar vann sinn andstæðing Ómar Annisius frá HFÆ með KO í annari lotu. Óskum við öllum keppendum til hamingju með frábæra keppni.
set hér inn myndband frá Sport Tv. af keppninni


