You are hereLög og Reglur / Reglur AIBA - Úrdráttur

Reglur AIBA - Úrdráttur


By Hnefaleikar - Posted on 28 August 2006

Reglur AIBA

Grundvallarreglurnar í áhugamannaboxi eru þær sömu um allan heim og eru notaðar allt frá keppnum heimafyrir allt upp í Ólympísku leikana.

Umhirða, klæðnaður og útbúnaður fyrir keppni

  • Komdu alltaf með keppnisskrá bókina þína í vigtun. Þú verður að koma með bæði rauða og bláa treyju svo þú getir verið í treyju í sama lit og hornið sem þú munt keppa í. Einnig er mælt með að vera með höfuðhlíf í sama lit. Þetta er gert til að koma í veg fyrir misskilning við stigagjöf því í hraða leiksins geta stig verið gefin í vitlaust horn ef treyjur keppenda eru ruglingslegar.
  • Karlmenn verða að vera algjörlega skegglausir í vigtuninni, en þunnt yfirvaraskegg sem ekki snertir efri vöruna er leyfilegt.
  • Hendurnar verða að vera vafnar inn í vafninga úr krepefni og mega ekki vera lengri en 2,5 metrar og breiðari en 5,7 cm, fest með lítilli límbandsræmu.
  • Stuttbuxurnar mega ekki ná niður fyrir hnén. Ef stuttbuxur og treyja eru af sama lit verður að vera minnst 10 cm mittisband í áberandi lit.
  • Þú mátt koma með þína eigin höfuðhlíf svo framarlega sem hún er samþykkt af AIBA.
  • Þér er alltaf skaffaðir hanskar, þú mátt EKKI koma með þína eigin.
  • Karlmenn þurfa alltaf að vera með punghlíf, almennilega fest á sinn stað.
  • Kvenmenn þurfa alltaf að vera með brjósthlíf en mega einnig vera með punghlíf.

Skilgreining á höggum sem hitta

Dómarar gefa stig fyrir hvert högg sem hittir. Högg sem hitta eru:

  • Án þess að vera hindrað, lendir með hnúann og lokuðum hanskanum einhversstaðar framan á andstæðinginn fyrir ofan beltisstað (að höndumundanskildum)
  • Brýtur ekki reglurnar (ekki villa)
  • Tengist með þyngd líkamans eða axlar

Högg fær ekki stig ef það brýtur reglurnar, lendir á höndum andstæðingsins, er slegið með öðrum parti en hnúanum og lokuðum hanska, varla snertir andstæðinginn eða tengist ekki með þyngd líkama eða axlar.

Villur

Brot á reglum kallast villur og mun dómari gefa áminningu, viðvöru eða jafnvel brottvísun.

  • Áminning getur verið gefin án þessa að stoppa bardagann. Þetta er snöggt merki frá dómara til á láta þig vita hvað þú hefur gert vitlaust svo þú getir forðast að gera það aftur.
  • Viðvörun krefst þess að bardaginn sé stöðvaður, brotið sannað og gerð skil fyrir brotamanni til dómara. Afleiðing er að dómararnir gefa refsistig.
  • Ef boxari fær þrjár viðvaranir í bardaga fær hann brottvísun.
  • Dómarinn hefur leyfi til að gefa viðvörun eða brottvísun án fyrrum áminninga eða viðvarana ef villan er alvarlegt.

Þetta teljast villur:

  • Slá fyrir neðan beltisstað, bregða fóti fyrir andstæðinginn, sparka eða nota fót eða hné.
  • Slá eða ýta með höfði, öxlum, handleggi eða olnboga.
  • Högg á afturhlið andstæðingsins, sérstaklega aftur á hnakka, háls eða á nýrnastað.
  • Slá andstæðing sem liggur niðri eða er að rísa upp.
  • Slá meðan haldið eða ýtt er andstæðingnum.
  • Slá með opnum hanska, úlnliði eða hlið hanskans.
  • Halda hendi beint út til að minnka sjón andstæðings.
  • Orðsendingar eða bendingar úr horninu meðan á bardaga stendur.
  • Fara ekki til baka þegar skipað er að fara í sundur (break).
  • Beygja sig niður fyrir beltisstað andstæðings á hættulegan hátt.
  • Reyna að slá andstæðinginn eftir að dómarinn skipar að fara í sundur (break), án þess að fara fyrst til baka.
  • Glíma, liggja ofaná eða kasta.
  • Læsa hendi eða haus andstæðingsins.
  • Halda föstum.
  • Skirpa út úr sér munngúmmíinu.
  • Móðgandi / særandi eða tilgangslaus tjáning.
  • Ýta.
  • Notfæra sér kaðlana á ósanngjarnan hátt.
  • Árásargjörn hegðun gagnvart dómaranum.
  • Snúningshögg.
  • Aðgerðarlaus vörn.

** Ef þú missir munngúmmíið þrisvar sinnum í bardaga, sama hver ástæðan sé, færðu viðvörun.

Aldursskipting (bæði kynin)

[Lágmarksaldur fyrir skráningu í Ástralíu er 10, en getur verið hærri í öðrum löndum]

> Master: 34 ára og eldri

> Senior: 17 - 33 ára

> Under 19: 17 - 18 ára (mega keppa sem senior)

> Under 17: 15 - 16 ára

> Under 15: 13 - 14 ára

> Under 13: 10 - 12 ára

 

Þyngdarflokkar

Fyrir karlmannsboxara 17 ára og eldri: Fyrir kvenmenn og alla yngri en 17 ára:

Léttfluguvigt -48 kg Pinvigt -46 kg

Fluguvigt 48 - 51 kg Léttfluguvigt 46 - 48 kg

Bantamvigt 51 - 54 kg Fluguvigt 48 - 50 kg

Fjaðurvigt 54 - 57 kg Léttbantamvigt 50 - 52 kg

Léttvigt 57 - 60 kg Bantamvigt 52 - 54 kg

Léttveltivigt 60 - 64 kg Fjaðurvigt 54 - 57 kg

Veltivigt 64 - 69 kg Léttvigt 57 - 60 kg

Millivigt 69 - 75 kg Léttveltivigt 60 - 63 kg

Léttþungavigt 75 - 81 kg Veltivigt 63 - 66 kg Þ

ungavigt 81 - 91 kg Léttmillivigt 66 - 70 kg

Yfirþungavigt 91+ Millivigt 70 - 75 kg

                        Léttþungavigt 75 - 80 kg

                        Þungavigt 80 - 86 kg

 

Tímalengd og fjöldi lota

Í heims-, heimsálfu- og Ólympískum keppnum eru kepptar 4 lotur og er hver lota 2 mín, 1 mín pása er milli hverra lota. Í milliríkjabardögum eru loturnar yfirleitt eins og að framan greinir en heimilt er þó að keppa 3-4 lotur 3 mín hver eða 6 lotur 2 mín hver. Alltaf skal þó vera 1 mín pása milli allra lota.

Hanskar snertast / heilsast

Þegar bardaginn er að byrja mun dómarinn kalla á þig í miðjan hringinn til að láta "hanska snertast" sem tákn um íþróttamennsku, síðan sendir hann þig aftur í hornið þitt til að bíða eftir bjöllunni. Þú mátt ekki láta hanskana snertast á þennan hátt meðan á bardaga stendur. Þú getur (og ættir) að heilsa eftir að úrskurður hefur verið tilkynntur. Ekki yfirgefa hringinn fyrr en eftir að verðlaunum og viðurkenningum hefur verið útdeilt.

Skipanir dómarans

Dómarinn notar þrár skipanir - boxið (box), stoppið (stop) og skiljist aaað (break). Þú verður að stoppa þegar í stað þegar þú heyrir dómarann kalla stop og mátt ekki halda áfram fyrr en hann segir box. Skipunin break er notuð þegar tveir boxarar eru flæktir og þurfa þá báðir aðilar að taka heilt skref aftur á bak áður en haldið er áfram að boxa. Break merkir hvorki að þú megir fá hvíld né fara úr vörn.

Tegundir úrskurða

Þú getur unnið bardaga með einni af eftirfarandi aðferð:

  • Stig - í lok keppninnar hefur þú skorað fleiri stig en andstæðingurinn.
  • Hætt keppni - andstæðingurinn mistekst að byrja lotu, hættir eða er sagt að hætta úr horninu sínu.
  • Brottvísun - dómarinn brottrekur andstæðinginn fyrir alvarlegt brot.
  • Rothögg - andstæðingur þinn er niðri í 10 sekúndur og er "talið hann niður".
  • Yfirburðir (RSCO) - dómarinn stoppar bardagann því andstæðingur þinn er yfirbugaður eða ófær um að halda áfram.
  • Yfirskoraður (RSCOS) - tölvan sýnir þig 20 stigum ofar en andstæðingurinn (karlmenn 17 - 33 ára) eða 15 stigum ofar (allir aðrir flokkar) í hvaða lotu sem er, utan síðustu lotunnar.
  • Meiðsli (RSCI) - dómarinn stoppar bardagann vegna meiðsla á andstæðingi þínum.
  • Höfuðmeiðsli (RSCH) - dómarinn stoppar bardagann vegna þess að andstæðingurinn er óhæfur til að halda áfram vegna höfuðhöggs.
  • Niðurtalningar takmörk (RSC CCL) - andstæðingur þinn hefur náð hámarks fjölda niðurtalninga (8-count)
  • Tafir - þú ert tilbúinn til að boxa í horninu þínu en andstæðingi þínum mistekst að koma í hringinn.

Niðurtalningin (8-cont) og takmörkin

Þegar boxari er tímabundið ófær um að verja sig (t.d. eftir þungt högg) stoppar dómarinn keppnina og telur upp á 8. Talningin hefst um leið og hinn boxarinn hefur farið í hlutlaust horn (hvítt) með hendur á hliðum og snýr að miðju hringsins.

Ef meiddi boxarinn getur ekki haldið keppni áfram eftir niðurtalninguna (að mati dómarans) er keppninni hætt og meiddi boxarinn tapar bardaganum. keppninni er einnig hætt ef boxari fær of margar niðurtalningar. Fyrir senior-flokkinn eru takmörkin 3 niðurtalningar í lotu eða 4 í allt. Fyrir yngri en 17, konur og masters-flokkinn eru takmörkin 2 niðurtalningar í lotu eða 3 í allt. Þetta er einnig skráð sem yfirburðir (RSC).

Öryggi þitt - lögbundið bann-tímabil

Ef þú tapar keppni með rothöggi eða RSC er þér bannað að sparra eða keppa í 28 daga til að tryggja að þú sért búinn að jafna þig. Ef þú færð annað bann innan 3 mánaða frá því fyrra gildir seinna bannið í 3 mánuði.

Sýningar bardagar

Ef ekki er hægt að finna jafnan andstæðing má keppnishaldar leyfa sýningarbardaga með boxara sem er ekki í þínum aldurs- eða þyngdarflokki. Í sýningarbardaga þurfa boxarar að einbeita sér að tækninni og minnka kraftinn í höggunum. Enginn sigurvegari er í sýningarbardaga.

Riftunarákvæði

Þetta er lítil tilvísun fyrir boxara og þjálfara. Það gildir ekki í öllum aðstæðum og kemur ekki í stað AIBA reglanna né nokkurra regla Boxing Australia eða tengdra ríkja.

Tekið af síðunni

http://boxingact.org.au/quickguide.html