You are hereAðstaða / æfingar
Aðstaða / æfingar
HR býður upp á alhliða boxþjálfun þar sem hver og einn getur fundið eitthvað við sitt hæfi. Sjá stundatöflu.
Í ólympísku boxi eru almennir hnefaleikar kenndir eftir lögum og reglum AIBA sambandsins. Notast er við ýmsar þol- og styrkæfingar bæði á gólfi og púðum. Ólympíska boxið skiptist í 3 hópa:
Diploma box (börn/unglingar); fyrir einstaklinga 10-14 ára sem vilja læra hnefaleika, þjálfa snerpu, auka úthald og efla styrk. Þessi tegund hnefaleika byggist á léttum snertingum (semi-contact) og er því áhætta á meiðslum í algjöru lágmarki. Iðkendur fá viðurkenningu (diploma) fyrir fótaburð, fjölbreytileika í höggum og vörn en vinna ekki með því að yfirgnæfa andstæðinginn eins og í almennu ólympísku boxi. Hentar mjög vel ungum byrjendum í hnefaleikum.
Almennt box (byrjendur 1-2); fyrir alla þá sem vilja læra ólympíska hnefaleika og komast í toppform um leið. Æfingarnar auka úthald, snerpu og eru frábær fitubrennsla! Aðaláhersla er lögð á æfingar á sekkjum, fókuspúðum, í þrekhringjum ofl. og byggjast þær á tækni ólympíska boxins.
Keppnisbox (framhald); fyrir þá sem eru lengra komnir og hafa hug á að keppa í hnefaleikum. Kennt er eftir reglum AIBA og er aðaláherslan lögð á að undirbúa iðkendur undir keppni með frekari þjálfun, bæði í hring og með þjálfara.
Endilega hafðu samband í síma eða tölvupósti eða komdu og kíktu á aðstöðuna til að kynna þér þetta nánar.
Heimilisfang: Suðurlandsbraut 6b - bak við Nings
Sími: 426-9464 (4-boxing)
Netfang: hnefaleikar@hnefaleikar.com


