Hnefaleikakeppni laugardaginn 6 mars hjá H.R

Keppendalisti 6 mars 2010
Blátt horn Raut horn
Léttvigt
1. Adrian Sienda HR VS Edward Ingi Torfason HAK
Þungavigt
2. Sigurjón Arnórsson HR VS Baldiur Örn Samúelsson HFL
Léttvigt
3. Daníel Hauksson HFH VS Elías Samsudin HFÆ
Yfirþungavigt
4. Kolbeinn Kárason HR VS Örnólfur Þorleifsson HFÆ
HlÉ
Millivigt
5. Tom Matthews HR VS Stefán Atli Ólason HAK
Létt veltivigt
6. Gísli Rúnar Gunnarsson HR VS Arnór Már Grímsson HAK
Létt veltivigt
7. Arndís Birta Sigursteinsdóttir HR VS Berglind Frances Aclipen HFÆ
Létt þungavit
Hnefaleikakeppni laugardaginn 6 mars hjá H.R
Jæja þá er loksins komið að því að við hjá Hnefaleikafélagi Reykjavíkur höldum keppni en við höfum ekki haldið keppni síðan við vorum í Faxafeni.
Keppnin núna verður haldin í husnæði okkar að Suðurlandsbraut 6 b ( á bakvið Nings, í sama húsnæði og bootcamp ) óhætt er að segja að búast megi við mörgum snörpum viðureignum þar sem að keppendur verða frá flestum félögum landsins. Gaman er frá því að segja að Skagamenn eru aftur að koma upp og eru að senda keppendur til þáttöku og vonumst við til þess að það verði góður gangur hjá þeim á komandi árum.
Húsið opnar kl. 19.30 og munu bardagar byrja kl.20.00 Miðaverð er kr. 1000
Ég set hér inn keppendalistann eins og hann blasir við í dag en þó með þeim fyrirvara að einhverjaer breytingar geta orðið og að þetta er ekki endanleg niðurröðun bardaga.
Tom Wolbergs HFR V.S Vikar Karl Sigurjónsson HR
Kolli Kárason HR V.S Örmólfur Þorleifsson HAK
Frábær árangur á KPcu 2010 í Svíþjóð
Strákarnir Gunnar og Gísli stóðu sig glæsilega á mótinu í Svíþjóð. video linkur á bardagana.
Leikar fóru þannig að á Laugardeginum keppti Gísli Rúnar við Strák frá Svíþjóð Fredrik Lundström í C classa senior 64 kg. og tapaði fyrir honum, svíinn var óvenju hávaxinn nærri 30 cm hærri en Gísli og er óhætt er að segja að Gísli stóð sig frábærlega á móti honum. Mikael Hök dómari sem Íslenskum boxáhugamönnum er vel kunnur gat síðan útvegað Gísla annan bardaga á sunnudeginum og þá við Senai Netzereat Svíþjóðm, strák í næsta flokki fyrir ofan, B classa og er skemmst frá því að segja að Gísli vann hann örugglega 3-0 og er það frábær árangur.
Keppnisferð til Uppsala í Svíþjóð
Föstudaginn næstkomandi þann 22 janúar munu þeir Gunnar Þór Þórsson og Gísli Rúnar Gunnarsson ásamt Fabio halda utan á tveggja daga mót sem verður haldið í Uppsölum í Svíþjóð. Þetta er í þriðja sinn sem við sendum keppendur á þetta mót sem heitir KP cup 2010 en það er ávalt haldið í lok janúar. Einnig sendum við 10 keppendur í æfingabúðir þangað árið 2007 og var það mikil reynsla fyrir keppendurna. Við óskum þeim Gunnar og Gísla alls hins besta.
Æfingabúðir á Laugarvatni
Video linkur.Helgina 8 til 10 janúar síðastliðinn mættu á Laugarvattni keppnisfólk frá 5 hnefaleikafélögum í æfingabúðir alls um 30 manns plús þjálfarar. Þetta er í annað skiftið sem félögin hafa æfingabúðir með þessu sniði á Laugarvatni. Fór þetta í allastaði vel fram undir sterkri stjórn Dodda ( Þórðar Sævarssonar ) eins og í fyrra skiptið. Fólk mætti á staðinn kl. 17.00 á föstudaginn ( nema þeir sem fóru lengri leiðina he he ) og hófst fyrsta æfingin kl. 18.00 og stóð yfir í 2 tíma, síðan var haldið heim í hús og fenginn kvöldverður og að honum loknum fann fólk sér eitthvað til dundurs þeir sem voru ekki of þreyttir. Laugardagurinn hófst síðan með morgunhlaupi kl. 07.00 og var dagskráin þannig að æfing var frá kl.10.00 til kl. 12.00 og síðan aftur frá kl. 15.00 til kl.17.00. Sunnudagurinn var með sama sniði nema hvað seinni æfingin hófst kl. 14.30 og stóð til kl.
Hnefaleikakeppni 17 okt.09
Þann 17 oktober síðastliðinn var haldin keppni hjá Hnefaleikafélaginu Æsi. Keppendur voru þar frá 4 félögum og er óhætt að segja að hún hafi farið í alla staði vel fram. Tveir keppendur voru þar frá okkur, þeir Pétur Þór Sævarsson og Gísli Rúnar Gunnarsson. Okkar menn unnu báðir sína bardaga Pétur marði nauman sigur á Sigurbirni Richter frá HFH og Gísli Rúnar vann sinn andstæðing Ómar Annisius frá HFÆ með KO í annari lotu. Óskum við öllum keppendum til hamingju með frábæra keppni.
set hér inn myndband frá Sport Tv. af keppninni
Hnefaleikakeppni
Laugardaginn 3 oktober verður haldin hnefaleikakeppni í Hafnarfirði, nánar tiltekið Dalshrauni 10.
Húsið opnar kl.19.30 og keppnin byrjar kl. 20.00. Kvetjum við alla þá sem áhuga hafa á hnefaleikum til að mæta og hvetja keppendur, þarna verða margir góðir bardagar.
Sjáumst í firðinum.

Frábær keppni á Ljósanótt
Keppnin á ljósanótt fór í allastaði vel fram, voru þarna margir góðir bardagar og var sérstaklega gaman að sjá Kenneth Nemming en hann er með þannig stíl að það er alltaf skemmtilegt á að horfa.
Okkar fólki Gunnar Þór og Arndísi gekk báðum mjög vel og unnu þau bæði sína bardaga 3 - 0, óskum við þeim báðum til hamingju með sigurinn.
Ég set hérna inn link á sport tv en þeir tóku upp keppnina. sport TV
Keppni á Ljósanótt í Keflavík
Við kvetjum sem flesta til að mæta á keppnina á ljósanótt og hvetja sitt fólk til dáða.
Frá okkur í H.R verða 2 keppendur þau Gunnar þór og Arndís, þetta er fyrsti bardagi
Arndísar í 2 ár og verður spennandi að sjá hvernig henni gengur.
Áfram Ísland, Áfram H.R




